Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Gjábakkavegur

Gjábakkavegur, heilsársvegur hefur verið sameiginlegt mál sveitarstjórnar Bláskógabyggðar síðan að Þingvallasveit, Laugardalur og Biskupstungur sameinuðust vorið 2002.  Vegatenging í nýju sveitarféagi varð eitt af fyrstu verkefnum sveitarstjórnar vorið 2002.  Á núverandi vegi yfir Lyngdalsheiði en hann tengir Þingvallasveit við Laugarvatn er skv. upplýsingum frá Vegagerðinni mesta slysatíðni allra vega á landinu.  Sveitarstjórn og Vegagerðin voru og eru einhuga um tillögur að vegstæði og tekið var fullt tillit til umhverfisþátta þegar tillögur lágu fyrir.  Umhverfisráðherra samþykkti ekki vinnu sem lögð var fram til samþykktar hennar í byrjun árs 2005.  Hún sendi sveitarstjórninni tillöguna til baka og setti fyrirmæli um að fram skyldi koma mat á vegstæði í núverandi vegskæði. Umferðaröryggi og aðrir þættir gera það að verkum að núverandi vegstæði verður ekki notað skv. ákvörðun sveitarstjórnar og Vegagerðarinnar.  Samt skyldi verkinu frestað skv. úrskurði Umhverfisráðherra og málið sent heim til endurvinnslu þ.e. lagt fram mat á vegstæði sem ekki er neinn vilji til að nota.

Umhverfisráðherra úrskurðaði fyrir skömmu svohljóðandi vegna vegar "leið B í 2. áfanga þar sem vegastæðið liggur um Teigsskóg

Ráðuneytið telur að óumdeilt sé að út frá umferðaröryggissjónarmiðum sé leið B í 2. áfanga betri kostur en aðrar leiðir sem Vegagerðin hefur lagt til. Í 1. lið 3. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum er hugtakið umhverfi skilgreint sem: ,,Samheiti fyrir menn, dýr, plöntur og annað í lífríkinu, jarðveg jarðmyndanir, vatn, loft, veðurfar og landslag, samfélag, heilbrigði, menningu og menningarminjar, atvinnu og efnisleg verðmæti”. Umtalsverð umhverfisáhrif teljast samkvæmt sömu grein veruleg óafturkræf umhverfisáhrif eða veruleg spjöll á umhverfinu sem ekki er hægt að fyrirbyggja eða bæta úr með mótvægisaðgerðum. Að mati ráðuneytisins vega umferðaröryggissjónarmið þungt við mat á því hvort framkvæmd geti talist hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum.

Umhverfisráðherra þarf núna að samþykkja framlagðar tillögur og samþykktir Bláskógabyggðar og Vegagerðarinnar svo að hægt verði að hefjast handa í umræddri vegargerð um Lyngdalsheiði, Gjábakkaveg.  Hik ráðherra hefur frestað málinu í tvö ár. Umferðaröryggi og vegtenging í sveitarfélaginu Bláskógabyggð má ekki bíða lengur.  Það er ekki eftir neinu að bíða. 


Um bloggið

T listinn

Höfundur

Drífa Kristjánsdóttir
Drífa Kristjánsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Njálsgata 22

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband